Fyrir 2-3árum voru settir upp ljósastaurar við hluta af þessum gangstéttum sem liggja á milli A: Stapasels, Stallasels, Stokkasels og Blásala B: Hveralind, Hljóðalind og Stuðlasel C: Ísalind, Iðulind og Strýtusel en verkið ekki klárað, það vantar td. ljósastaur við gangstétt milli Stapasels 8/10 og Blásala 25 og við fleiri af þessum stöðum. Einnig mætti þétta staura á gangstígnum milli þessara hverfa á þessu svæði, það sést vel hvað lýsing er þéttari á nýrri gangstígnum ofar í hverfinu
Þessi hugmynd var færð úr Hverfið mitt 2016 og hægt er að finna hana hér: https://hverfid-mitt-2016.betrireykjavik.is/post/7390
Það er mikil gangandi og hjólandi umferð á milli Seljahverfis og Kópavogs. Þörf á betri lýsingu annað hvort með ljósastaurum við þessar gangstéttir eins og sumstaðar er búið að gera eða á móts við þær Kópavogsmegin en þeim megin eru ljósastaurarnir sem lýsa upp gangstéttina á milli Seljahverfis og Kópavogs, eins og sjá má á malbikinu þá eru þeir ljósastaurar sem upp voru settir fyrir 2-3árum fæddir frá þeim.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation