Tjarnargata verði alfarið einstefnugata
Ég er alin upp við Tjarnargötuna í Reykjavík. Þegar henni var breytt á sínum tíma var neðri hluti hennar gerður að einstefnugötu. Efri hluti götunnar hélt hins vegar áfram að vera tvístefnugata. Það að þurfa mæta bíl á gatnamótum Hringbrautar og Tjarnargötu, að vetri til sérstaklega, getur beinlínis verið lífshættulegt. Ótrúlegt að fleiri slys hafi ekki orðið þarna. Ég tel að rétt væri að hafa einstefnuna alla í sömu átt, þ.e. Hringbraut í átt að Ráðhúsinu. Þessu verður að breyta!
Ég styð það heilshugar að syðri (efri) hluti Tjarnargötunnar verði einstefnugata, en ekki í sömu átt og neðri hlutinn. Við höfum átt fótum fjör að launa þegar bílar koma á tveimur hjólum allt of hratt inn af Hringbrautinni. Ef fólk á erindi á neðri hlutann er lítið mál að fara í hringtorgið og þaðan inná Suðurgötu, Skothúsveg og beygja inn á Tjarnargötu. Efri hlutinn er ekki stórhættulegur þegar bílar keyra allt of hratt inn götuna.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation