Börnin í gerðunum sækja mikið í Krummabrekku með sleðana, skíðin, brettin og ýmis önnur snjóleikföng. Brekkan endar alveg við Miklubraut og okkur foreldrum stendur ekki á sama um það. Væri ekki hægt að koma fyrir dekkjum, girðingu eða mön þarna neðst til að koma í veg fyrir slys.
Við viljum öll varna því að börnin okkar slasist en við viljum líka auka útiveru þeirra og hvetja til hreyfingar er það ekki ?
31.10.2013: Þessi hugmynd hefur verið flutt úr málaflokknum "velferð" yfir í málaflokkinn "umhverfismál".
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation