Hætta lokun v. beygju frá Bústaðavegi á Sæbraut/Reykjanesbr.
Lokun v. beygju neðst á Bústaðaveginum inn á Reykjanesbraut/Sæbraut er illa hugsuð og veldur vanda hvern dag. Fjöldi fólks þarf að fara lengri leið en áður til að komast leiðar sinnar á lokunartíma og tímasparnaður þeirra sem fara í Breiðholtið er varla umtalsverður. Þetta er á pari við ýmsar aðrar lokanir á götum - sem oft á tíðum valda bara töf og lengri akstri, sem skilar sér í meiri mengun.
Keyri þarna nánast daglega og þessi breyting hefur gjörbreytt og stórbætt samgöngur allra sem eru á leið í Breiðholt, Garðabæ, Hafnarfjörð.... Það væri stórmistök að hætta þessu.
Ef það væri nú enn opið yfir í Kópavog frá Víkinni þá væri þetta eflaust ekki jafn truflandi fyrir þá sem búa næst lokuninni.
Er þetta ekki fyrst og fremst hugað til að hraða umferð frá Reykjarvíkurvegi inn á Sæbraut? En já, ég tek oft eftir fólki sem lendir í vandræðum við gatnamótin.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation