Breyta strætó leið 26
Breyta strætó leið 26 þannig að í stað þess að vagninn gangi Vikurvegi taki hann örlítinn hring, þ.e. fari af Víkurvegi inn á Gagnveg, þaðan Hallsveg og aftur út á Vikurveg og öfugt. Ekkert aðgegni er að íþróttamiðstöðinni og sundlaug Grafarvogs með strætó úr Grafarholti. Þeir sem búa í Grafarholti og stunda íþróttir hjá Fjölni í Dallhúsum þurfa að geta tekið strætó sem og þeir sem vilja sækja sund í næstu sundlaug. Það yrðu 2 stoppustöðvar á Gagnvegi og tæki örstutta stund að taka þennan krók.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation