Hvað viltu láta gera? Búa til aðstöðu á Hagatorgi fyrir fólk. Gróðursetja tré og runna, blómaker, mynda skjól, setja upp bekki og borð, vallarstæði fyrir petanque, og eitthvað fleira í þeim dúr. Gera lítinn almenningsgarð í miðju hverfinu. Hvers vegna viltu láta gera það? Í dag er torgið auðn ein með stórt listaverk í miðjunni. Þetta er flennistórt landssvæði í miðju eins þéttbýlasta hverfis á Íslandi. Það er fullkomin sóun að sé nú aðeins notað af bílum til að keyra í hálfhringi. Gerum hverfið okkar vistvænna og búum til fleiri vistvæn svæði.
Allt er betri nýting á þessu svæði en torgið sem þarna er núna. En er þetta ekki í raun bara míní-útfærsla á hugmyndinni sem einnig er hér á gáttinni, um að taka torgið í burtu og útbúa í staðinn samfellt svæði fyrir nám og leik: https://hverfidmitt-2020-2021.betrireykjavik.is/post/28649
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmynd þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins. Þær 5 hugmyndir sem fengu flest like í hverju hverfi, af þeim sem eru tækar, fara sjálfkrafa á kjörseðlana. Þín hugmynd var sameinuð við 1 af efstu 5 hugmyndunum í hverfinu og er því sjálfkrafa komin á kjörseðilinn í þínu hverfi. Hugmyndin var sameinuð við hugmynd sem heitir “Garður í stað götu: Bylting fyrir börn og mannlíf”. Nánari útfærsla á hugmynd verður aðlöguð til að passa að reglum verkefnisins og kosið verður um svipaða útfærslu og í Hverfið mitt 2019. Fyrsta áfanga var kosið um 2018 og hefur verið framkvæmdur. Næsti áfangi felur í sér framkvæmdir innan Hagatorgs, m.a. lagningu göngustíga, koma fyrir bekkjum, gróðursetning o.þ.h. Hinum tæku hugmyndunum verður stillt upp á fundi íbúaráðs Vesturbæjar á þriðjudaginn næstkomandi þann 30. mars milli kl. 17-19 þar sem valdar verða 25 af þeim hugmyndum sem verða á kjörseðli hverfisins í kosningunni í haust. Hér er hlekkur á facebook event fundarins sem verður opinn og streymt beint: https://www.facebook.com/events/446160169797749/. Fundir íbúaráðanna þar sem valið verður hvaða hugmyndir fara á kjörseðla hverfanna næsta haust verða formlegir aukafundir þar sem allir geta tekið þátt. Við viljum eindregið hvetja þig til þess að taka þátt í fundinum í þínu hverfi og vekja athygli á honum og hugmynd þinni eins og þú hefur tækifæri til. Dagsetningar allra fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]
Kæri hugmyndahöfundur Uppstilling kjörseðla hverfa Reykjavíkur fyrir kosningarnar í íbúalýðræðisverkefninu Hverfið mitt sem fram munu fara næsta haust fór fram á opnum fundum íbúaráða Reykjavíkurborgar frá 22. mars til 20. maí sl. Þín hugmynd var sameinuð annarri hugmynd sem verður á kjörseðlinum í hverfinu í kosningum næsta haust. Hugmyndin þín lifir áfram í sameinuðu hugmyndinni en á síðu Betri Reykjavíkur fær hugmyndin stöðuna “Hafnað”. Í fyrsta skipti var öllum boðin þátttaka í þessum lið ferilsins, þ.e. að velja hugmyndir á kjörseðilinn að yfirferðar- og samráðsferli loknu. Þátttakan í uppstillingunni fór fram úr björtustu vonum og ljóst að margar góðar hugmyndir verða á kjörseðlum allra hverfa Reykjavíkur í kosningunni í haust. Á www.hverfidmitt.is má sjá þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 30. september - 14. október næstkomandi. Til þess að auka líkurnar á því að hugmyndin verði kosin til framkvæmda sumarið 2022 getur þú kynnt hana fyrir nágrönnum þínum og hvatt þau til þess að taka þátt í kosningunni í haust. Við sendum þér póst og minnum þig á þegar að því kemur. F.h. Hverfið mitt Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation