Með því að hægja á umferð um Nesveg líkt og gert hefur verið á Ægissíðunni austanverðri, og breikka Eiðsgrandann yrði mun fýsilegra fyrir Seltirninga að fara þá leið. Nesvegur og Hofsvallagata eru íbúagötur þar sem börn fara yfir göturnar á leið í skóla.
Mér finnst fráleitt að hálft bæjarfélag, ibúar á sunnanverðu Seltjarnarnesi, fari um íbúagötur, Nesveg, Ægissíðu eða Hofsvallagötu, á leið í vinnu. Þetta eru íbúðargötur. Það væri mun nær að beina þessari umferð á Eiðsgrandann og þaðan á Hringbraut.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation