Vantar stæto ur Moso framhja Egilshöll um kvö og helgar
Það er komið mikið aþreyinga efni asamt iþrottaviðburðum i Egilshöll en er erfitt fyrir Mosfellinga,Kjalnesinga og Akurnesinga að komast þangað nema eftir krokaleiðum.
Ég vil benda á að ef þessi breyting sem óskað er eftir í þessari tillögu nær fram að ganga á kostnað þeirrar leiðar sem er í dag, er hún ekki ráðleg að mínu mati. Það sem ég á við er að það er afar sjaldgæft að folk sem býr í úthverfum geti verið komið niður í miðbæ á undir 30 mínútum, en það er einmitt hægt í dag úr Mosfellsbæ og niður í bæ. Þetta eru lífsgæði og kostur sem vert er að hafa í huga. EF leið 15 færi í gegnum Grafarvog, þá um leið verður ferðinn niður í bæ kominn langt upp fyrir 1 klukkustund. EF hinsvegar ákveðið verður að setja lítinn strætó milli MOsfellsbæjar og Grafarvogs og t.d niður í Mjódd og Smára, þá væri það gáfuleg framkvæmd í mínum huga, og mundi um leið auka valkosti Mosfellinga að komast í bæinn.
Þeir sem ætla frá Kjalarnesi og í Egilshöll með strætó, þurfa að byrja á því að taka strætó leið 57 frá kjalarnesi og fara út við endastöð í Háholti og bíða svo í 2 mín. og taka leið 15 niðrí Ártún og að lokum þarf að taka leið 24 frá ártúni og fara út á stoppistöð við gatnamótin hjá Egilshölll og þetta er bara einhver steypa að fara einhverja krókaleið með strætó, í staðinn fyrir að lagður sé beinn strætó á milli þessara hverfa.
það ætti ekki að vera mikil breyting á leiðarkerfinu að leið 15 æki um korpúlstaða og víkurveg og þaðan aftur út á vesturlandsveg þá er komin tenging milli Grafarvogs og Mosfellsbæjar, ekki bara við Egilshöllina heldur líka Borgarholtsskóla (stutt í spöngina)svo dæmi sé tekið
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation