Gera Blesugrófina að "sveit í borg" – leyfa hænur t.d.
Einu sinni var Blesugrófin og það hverfi e.k. „sveit í borg". Að leyfa t.d. hænur í takmörkuðu magni myndi auka fjölbreytnina í borgarlífinu. hægt að takmarka fjöldann sem hver væri með við t.d. 3–4 stk. Að hvetja t.d. íbúana til krydd- og matjurtaræktunar og moltugerðar væri skref í áttina að gera hverfið „vistvænt“. Smám saman yrði hverfið ákjósanlegur kostur fyrir fólk sem hefur áhuga á gróðri og sjálfbærni.
en mætti hafa raddlausan hana..
það eru þarna kanínur við eitt hús margar, en þær gala ekki hátt á morgnana
Inní Elliðaárdalnum, já :) Ef þetta yrði hverfi þar sem vitað væri fyrirfram að væri „líflegt“ þá þyrfti enginn að ergja sig yfir hanagali snemma á morgnana :)
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation