Tímatöflur strætó
Það er oft ekki nóg að vita hvenær vaginn kemur á þessa biðstöð, það er gott að vita hvenær hann verður kominn á leiðarenda. Gömlu töflurnar sýndu það - hver er ástæðan fyrir að þeim var hent út ?
Nýju töflurnar eru margfalt betri og meira upplýsandi en þær gömlu og í takt við það sem gerist í þeim almenningssamgöngukerfum sem eru notuð mest í heiminum. Með gömlu skiltunum þurfti maður að þekkja vel til og vera sleipur í reikningi til að giska (með góðri nálgun) á hvenær næsti vagn kæmi. Til að koma til móts við þær þarfir sem eru settar fram í hugmyndinni mætti gera eins og í Köben þ.e. sýna hvað er langt í mínútum frá stöðinni að hverri stöð sem er eftir, á núverandi skilti.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation